Vísindamönnum tókst nýlega að leysa tæplega 440 ára gamla ráðgátu. Það var árið 1587 sem Francesco de‘ Medici, stórhertogi, og eiginkona hans Bianca Capello létust með nokkurra daga millibili eftir að hafa veikst skyndilega.
Þau voru valdamikil innan ættarveldis sem réði yfir Toscana á Ítalíu. Orðrómar fóru á kreik um að eitrað hefði verið fyrir þeim með arseniki og að það hefði verið yngri bróðir Francesco, Ferdinando kardináli, sem hefði gert það. Hann var pólitískur keppinautur bróður síns.
Hann gekk bróður sínum næst að erfðum en átti á hættu að færast neðar í erfðaröðinni því Francesco átti son utan hjónabands. Orðrómarnir kváðu á um að Ferdinando vildi tryggja sér völdin áður en sú staða kæmi upp að frændi hans yrði tekinn fram fyrir hann. Orðrómarnir sögðu einnig að hann hefði heimsótt bróður sinn og eiginkonu hans, nokkrum dögum áður en þau veiktust, á heimili þeirra í Poggio a Caiano.
Á þessum tíma var einnig grunur um að malaría hefði orðið hjónunum að bana því þau fengu hita og urðu mjög veik. Heimili þeirra var á svæði þar sem mikil hrísgrjónarækt var stunduð og því góðar aðstæður fyrir mýflugur sem bera malaríu með sér.
En orðrómarnir um að eitrað hefði verið fyrir þeim lifðu lengst og voru þeir umtöluðustu.
Í rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu iSciences og margir alþjóðlegir fjölmiðlar hafa vitnað í, kemur fram að vísindamenn við Yale háskólann í Bandaríkjunum hafi í samvinnu við vísindamenn við háskólann í Pisa komist að því hvað varð hjónunum að bana.
Það var malaría sem barst í þau með mýflugum. Vísindamennirnir rannsökuðu erfðaefni sem var tekið úr beinagrind stórhertogans og fundu tvö sníkjudýr sem valda malaríu sem berst með mýflugum.
„Nú getum við með fullri vissu sagt að malaría, ekki eitur, hafi orðið Francesco de Medici, stórhertoga, að bana,“ sagði mannfræðingurinn Serena Tucci.