Rússneski herinn er nú að safna liði við finnsku landamærin og það hefur gert að verkum að margir hafa áhyggjur af að Rússar ætli að ráðast á Finnland.
Úkraínski fréttamiðillinn UNN skýrir frá þessu. Miðillinn hefur eftir hernaðarsérfræðingnum Oleksandr Kovalenko að fólk eigi að halda ró sinni hvað varðar Finnland því það muni reynast Rússum erfitt að ráðast á landið.
Hann sagði að Rússar geti ekki vænst mikils árangurs ef þeir gera leifturárás á Finnland því landið sé svo erfitt yfirferðar.
Hann sagðist telja að liðsafnaðurinn við finnsku landamærin sé til þess að leiða athyglina frá því sem Rússar hafi í raun og veru í huga. Með þessu neyði þeir NATÓ til að binda mikinn herafla við finnsku landamærin.
Hann sagðist telja miklu líklegra að Rússar ráðist á Eistland því ákveðin rússnesk landsvæði henti vel til að safna saman herliði án þess að eftir því sé tekið.
Hann sagði einnig að Eistar hafi ekki næga getu til að verjast stórri árás upp á eigin spýtur.