Pressan

Bróðir fyrrverandi yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar reyndi að lokka börn inn í hótelherbergi

Mynd

Batarti Gabbard hefur verið handtekinn og er borinn þungum sökum, en Batarti er bróðir fyrrum yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar.

Eftir að Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna skipaði hann Tulsi Gabbard sem yfirmann leyniþjónustunnar, en hún sagði af sér í maí á þessu ári. Tulsi sagði í yfirlýsingu að henni hafi þótt rétt að segja af sér embætti svo hún gæti stutt betur við eiginmann sinn sem hefur greinst með krabbamein. Almennt er þó talið að henni hafi verið bolað úr embætti eftir að hafa fallið í ónáð hjá Trump.

People greinir nú frá því að Batarti hafi verið handtekinn á föstudaginn eftir að hann reyndi að lokka börn inn á hótelherbergi sitt á Hawaii. Hefur hann verið ákærður á grundvelli ákvæðis sem fjallar um afskipti af forsjárrétti.

Atvikið sem málið varðar átti sér stað sunnudaginn 12. júlí en þá mun Batarti hafa nálgast hóp barna á sundlaugarsvæði hótels í Waikiki á Hawaii. Lögreglan sagði í fréttatilkynningu:

„Um klukkan 14:00 mun ókunnugur maður hafa nálgast nokkur börn, þar á meðal 9 ára dreng, og boðið þeim tyggjó og peninga til að fylgja sér inn á hótelherbergi sitt.“

Mun Batarti hafa beðið um nöfn barnanna og skrifað þau niður í minnisbók. Börnin neituðu þó boðinu og var atvikið í framhaldinu tilkynnt til lögreglu.

Tulsi og Batarti eru börn Mike Gabbard sem situr í öldungadeild þingsins í Hawaii fyrir Demókrataflokkinn. Mike hefur gefið út tilkynningu vegna málsins og segir Batarti hafa glímt við andleg veikindi í gegnum tíðina en hafi þó verið á góðum stað undanfarinn áratug. Nú hafi hann þó lent í erfiðleikum. Hann sé á götunni eftir að kona hans henti honum út. Hann hafi gefið heimilislausum manni bifreið sína, týnt persónuskilríkjum sínum ásamt farsíma og sé þar að auki blankur. Hann hafi tekið upp nafnið Batarti ásamt nafninu Jim Morrison Jr. og glímir við ranghugmyndir um að hann sé rokkstjarna. Hann hafi verið sendur á sjúkrastofnun til að gangast undir geðmat skömmu áður en hann var handtekinn.

Eiginkona Batarti hefur sótt um nálgunarbann gegn honum með vísan til þess að hann sé vanstilltur og óútreiknanlegur.