Ferðakona var handtekin á Gran Canaria-flugvelli eftir að hafa að sögn yfirgefið hótel án þess að greiða tæplega 2.500 evra reikning, sem er andvirði um 350 þúsund íslenskra króna.
Canarian Weekly greinir frá þessu.
Konan, sem ekki hefur verið greint frá hvaðan er, var stöðvuð áður en hún gat farið um borð í flug með fjölskyldu sinni. Fjölskyldan, tveir fullorðnir og eitt barn, hafði dvalist í ellefu nætur á hóteli í San Bartolomé de Tirajana. Bókunin var gerð á vefsíðu hótelsins og bankakort skráð sem greiðslutrygging. Þegar hótelið reyndi að skuldfæra dvölina við brottför tókst greiðslan ekki.
Starfsfólk hafði ítrekað samband við konuna, sem sagðist ætla að greiða en væri þegar komin á flugvöllinn og ætti í erfiðleikum með að nálgast bankakortið sitt. Samkvæmt hótelinu hætti hún síðar að svara skilaboðum og reikningurinn var áfram ógreiddur.
Málið var því tilkynnt lögreglu sem hafði uppi á konunni á flugvellinum og handtók hana. Hún var síðar leidd fyrir dómara sem mun ákveða framhald málsins.