Slökkvilið hefur náð tökum á eldi sem geisað hefur í íbúðahverfi í Drammen í Noregi frá því í gær. Mbl.is greinir frá.
Um 400 manns hafa verið flutt á brott og yfir 100 íbúðir eru gjörónýtar.
Eldur logar enn á nokkrum stöðum í hverfinu, sem og í nærliggjandi skógi.
Engar tilkynningar hafa borist um íbúa sem er saknað. Tveir hafa hins vegar verið fluttir á sjúkrahús vegna reykeitrunar.
Til allrar hamingju er spá mikilli rigningu á svæðinu í dag.