Einn er látinn eftir skotárás sem átti sér stað niður af Álaborg í Danmörku í dag. Árásarmaðurinn hóf skothríð þegar lögregla mætti á vettvang í kjölfar tilkynningar um eldsvoða og skothvelli.
Árásarmaðurinn særðist alvarlega í skotbardaga við lögreglu en eins mun lögreglumaður hafa orðið fyrir skoti.
Á blaðamannafundi rétt í þessu sagði lögreglustjórinn Claus Danø að skotmaðurinn hefði skotið bæði að borgurum og lögreglunni.
„Það gætu því verið aðilar sem við höfum ekki heyrt frá sem þurfa hjálp,“ sagði lögreglustjórinn sem hvetur þessa einstaklinga til að gefa sig fram.
Skotmaðurinn mun hafa særst á hálsi og er ástand hans alvarlegt. Rannsókn málsins er nú í fullum gangi en lögregla veit ekki enn hvað vakti fyrir skotmanninum. Hins vegar er talið að um einangrað tilvik sé að ræða og því sé hættan liðin hjá hvað almenna borgara varðar, en þeim var fyrr í dag ráðlagt að halda sig frá vettvangi.
Lögreglustjórinn segist að öðru leyti lítið geta tjáð sig um málið á þessu stigi. Hann tók þó fram að þegar lögreglu bar að garði hafi árásarmaðurinn strax hafi skothríð.
Borgari fannst látinn á vettvangi eftir að skotmaðurinn hafði orðið fyrir skoti þegar lögregla var að tryggja vettvanginn. Að sögn Danø er talið að skotmaðurinn hafi banað hinum látna og ekki er talið að um slysaskot frá lögreglu hafi verið að ræða.
Lögreglumaðurinn sem særðist í árásinni er ekki talinn í lífshættu. Hann var skotinn í fótinn og þarf að gangast undir aðgerð á sjúkrahúsi en ástand hans er þó sagt stöðugt.