Pressan

Lífið breyttist þegar hún uppgötvaði hver afi hennar var - „Ég bara hrökk í kút og hágrét“

Mynd

Árið 2022 lifði Sophie Maddox ósköp venjulegu lífi. Hún var 22 ára gömul, bjó í Los Angeles og dreymdi um að verða leikkona. Eftir ferðalag til New York-borgar breyttist allt.

„Ég fékk COVID í fluginu á leiðinni heim,“ segir Maddox í samtali við People. Hún hringdi í föður sinn, Daniel Arguelles, og bað hann að skutla sér í sýnatöku. Það var þá sem faðir hennar ákvað að varpa sprengjunni: „Hann sagði: „Ég tel mig hafa fundið út hver faðir minn er. Og af því ef það er satt þá er það frekar hrottalegt.““

Faðir Maddox var alinn upp af móður sinni og stjúpföður. Honum hafði aldrei verið sagt hver líffræðilegur faðir hans var. Árið 2015 ákvað Arguelles að leita að uppruna sínum og sendi erfðaefni sitt til vefsíðu sem rekur saman ættir. Nokkrum árum síðar fékk hann tilkynningu um að hann ætti samfeðra bróður. Faðir bræðranna var enginn annar en Charles Manson, einn þekktasti glæpamaður Bandaríkjanna.

Árið 1969 leiddi Manson hóp fólks, eins konar sértrúarsöfnuð sem fylgdi honum í einu og öllu. Það var í ágúst það ár sem fylgjendur hans myrtu sjö manns á tveimur dögum, þar með talið leikkonuna Sharon Tate sem var komin átta mánuði á leið. Öll fórnarlömbin voru myrt á hrottalegan hátt en morðunum var ætlað að koma af stað stríði milli kynþátta í Bandaríkjunum, eða svo var sagt. Rannsakendur töldu þó líklegra að morðin hafi átt rætur að rekja til þess að umboðsmenn í Hollywood neituðu að gera plötusamning við Manson, sem taldi sig mikinn tónlistarmann.

Manson lést í fangelsi árið 2017, þá 83 ára að aldri.

Skiljanlega varð Maddox nokkuð um að heyra af þessum uppruna sínum, enda Manson meðal hötuðustu glæpamanna sögunnar.

„Ég bara hrökk í kút og hágrét,“ segir Maddox sem síðar breytti vörn í sókn og gerði heimildarmynd um þessa reynslu sína sem verður frumsýnd á Hulu og Disney+ síðar í þessum mánuði.

Maddox kafar ofan í sögu afa síns, þar með talda ofbeldisfulla æsku hans, andleg veikindi og glæpaferilinn.

„Ég vildi heyra frá fólki sem þekkti hann – ekki bara þá mynd sem fjölmiðlar máluðu upp og ekki heldur myndina frá ákæruvaldinu. Ég hef myndað mér mína eigin skoðun á honum.“

Maddox segist ítrekað hafa spurt ömmu sína hver afi hennar væri í raun og veru. Svarið sem hún fékk var að amma hennar, Darlene, hafi átt skyndikynni við mann að nafni Charlie Dear sem hún kynntist á rútustöð þegar hún var aðeins 17 ára. Tíu árum síðar var andlit Mansons á forsíðum allra dagblaða. Þegar Darlene sá myndina þekkti hún aftur manninn sem hafði barnað hana og hafði greinilega gefið henni upp rangt nafn. Darlene sagði þó hvorki syni sínum né sonardóttur frá heldur hélt faðerninu leyndu allt þar til hún lést árið 2020.

Maddox segir að heimildarmyndin sé ákveðin heilun, þetta sé hennar leið til að rjúfa vítahringinn. Hún hafi ákveðið að kynna sér Manson, manninn á bak við skrímslið á forsíðum dagblaðanna og krassandi fyrirsagnirnar.