Pressan

Grét þegar hún var sakfelld fyrir að hafa valdið dauða 3ja mánaða dóttur sinnar með hárblásara

Mynd

Hin 28 ára gamla Courtney Gartshore hefur verið dæmd fyrir manndráp eftir að 3ja mánaða dóttir hennar, Dahlia-Rose, fannst látin á heimili mæðgnanna í Skotlandi. Atvikið átt sér stað í september árið 2023.

Litla stúlkan lést af völdum brunaáverka sem hún hafði hlotið á um 18 prósent líkamans. Áverkarnir voru síðar raktir til hárblásara en ekki liggur fyrir með hvaða hætti barnið varð fyrir heitum blæstri hártækisins. Það liggur þó fyrir að Gartshore var drukkin þetta örlagaríka kvöld.

Gartshore neitaði sök í málinu og sagði litlu stúlkuna hafa látist í svefni. Hún hafi komið að dóttur sinni blárri í rúminu.

Sérfræðivitnið taldi mögulegt að brunaáverkarnir hefðu komið til eftir að stúlkan var þegar látin.

Erfðaefni stúlkunnar fannst á hárblásaranum.

Gartshore hefur nú verið sakfelld fyrir að hafa orðið valdur að andláti dóttur sinnar. Að sögn BBC hágrét hún eftir að dómurinn var kveðinn upp. Refsing hennar verður ákvörðuð í ágúst.