Kona á þrítugsaldri þurfti á leita á sjúkrahús með alvarlegt sár sem hún segir að rekja megi til sandala sem hún keypti í Primark. Þá fataverslun þarf ekki að kynna fyrir Íslendingum sem ferðast mikið en þar má finna allskonar föt og fleiri varning á mjög lágu verði.
Jess Bache fjallar um þetta furðulega mál á TikTok síðu sinni og hefur hún fengið mikil viðbrögð. Hún keypti sér sandalana í Devon á Englandi 16. júní síðastliðinn en notaði þá ekki fyrr en 9. júlí og gekk í þeim í rúmar 40 mínútur.
Eftir göngutúrinn tók hún eftir blöðru á fætinum. Á næstu dögum fékk hún hita og loks tvöfaldaðist fóturinn, þá leitaði hún á sjúkrahús. Þar var hún greind með sýkingu og þurfti að fara á sýklalyf.
„Ég fann svo til og gat varla gengið. Eins og það væri verið að stinga mig með nálum,“ segir hún. Fann hún fyrir miklum þrýstingi og kom appelsínugulur gröftur úr sárinu. „Læknarnir sögðu mér að ég væri með sýkingu sem væri bara einu skrefi frá því að vera með blóðsýkingu.“
Hefði hún beðið lengur hefði hún getað dáið. „Þetta hefði getað orðið tíu sinnum verra og ég fengið blóðsýkingu.“ Jess segist oft hafa verslað í Primark og þetta sé í fyrsta sinn sem hún lendi í vandræðum. „Ég ætla ekki að spara og kaupa aftur ódýra sandala. Ég er búin að henda þeim. Ég ætla að kaupa mér dýrari sandala til að lenda ekki aftur í svona martröð.“
Breska dagblaðið Mirror hefur eftir talsmanni Primark að málið sé tekið mjög alvarlega og passað sé upp á að allar vöru uppfylli kröfur.