Pressan

Átt þú „krísuvin“ eða ertu jafnvel sá vinur?

Mynd

Hefurðu einhvern tímann horft á sms frá vini og spurt þig: „Hvað nú“ Viðkomandi gæti verið „krísuvinur“ þinn. Þú gætir einnig verið sá vinur hjá öðrum.

Vináttusambönd eru ólík og oft geta tveir einstaklingar verið góðir vinir þar til breytingar eiga sér stað sem leiða til þess að þú bregst öðruvísi við einum einstaklingi en öðrum, jafnvel þótt viðkomandi sendi þér sömu textaskilaboðin.

Sá einstaklingur verður „krísuvinur þinn“, hugtak sem TikTok hefur búið til. Slík vinátta er skilgreind af einni krísu eftir annarri og jafnvel þótt þú gerir þér ekki grein fyrir því, gætirðu jafnvel verið sá vinur hjá öðrum.

Samkvæmt Shasta Nelson, sérfræðingi í félagslegum samskiptum, finnst vininum sem um ræðir hann vera „í krísu allan tímann“ og mun aðeins leita til vina sinna ef og þegar hann á við vanda að stríða.

Nelson sagði við í USA Today : „Krísuvinur er í grundvallaratriðum einhver sem líður eins og hann sé í krísu allan tímann og leitar aðeins til vina sinna þegar hann á í krísu. Og svo er líka, í mörgum tilfellum, það sem ég myndi kalla „krísutímabil“. Og ég vil aðgreina þetta tvennt, því við göngum öll í gegnum krísutímabil og upplifum hræðilega hluti og missi og sorg,“ útskýrði Nelson.

Mynd

En ef þú ert vinurinn sem hringir aðeins í vini þína þegar þú átt í vandræðum, og ekki þegar þú vilt bara hanga og tala um aðra hluti, þá ert þú krísuvinurinn. Það sem heilbrigð vinátta þarfnast er gagnkvæmni, segir Nelson.

„Ég get mælt heilsufar allra sambanda tveggja einstaklinga þegar við getum í grundvallaratriðum skoðað bankareikning sambandsins, ef svo má að orði komast,“ segir Nelson. „Eitt af því sem skiptir mestu máli er að ef þú átt vináttubönd sem hafa verið að leggja inn nægilega mikið, ef svo má að orði komast, þá geturðu tekist á við úttektatímabil, því hlutfallið er í lagi og þú ert ekki í skuld. En ef þú hefur ekki verið að leggja innð, ef svo má að orði komast, og ert stöðugt að taka þann tíma út bara fyrir þín mál, þá skilur það vinabankann eftir í halla.“

Nelson segir að í samfélagi nútímans geti utanaðkomandi áhhrif haft áhrif á að krísuvinur verði að veruleika. Eins og að eiga ekki marga aðra vini til að leita til vegna „einmanaleikafaraldurs“.

„Við erum að fást við menningu sem er í mikilli einmanaleikaþróun og flestir okkar búast við aðstoð frá nokkrum vinum sem við vorum áður vön að búast við frá stærra samfélagi,“ útskýrði Nelson.