Pressan

Uppgötvuðu nýja apategund – Útlitið vekur athygli

Mynd
Likweli býr hátt uppi í trjám í frumskógum Kongó. Mynd/Getty

Vísindamenn hafa staðfest uppgötvun á nýrri apategund sem fannst djúpt inni í frumskógum Lomami þjóðgarðsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. 

Apategundin hefur hlotið nafnið Likweli og latneska heitið Colobus congoensis. Er þetta fimmta apategundin sem hefur fundist á síðustu 75 árum. 

Apinn hefur vakið mikla athygli fyrir útlit sitt en appelsínugular varirnar eru óneitanlega áberandi. „Á dökku andlitinu er áberandi ber húð sem er bleik til krem-appelsínugul, bæði hjá karl- og kvendýrum,“ segir í PLoS One vísindatímaritinu. Einhver munur er á milli einstakra apa hversu áberandi varirnar eru. 

Mynd

Likweli hefur sést áður en það er ekki fyrr en núna að það er alveg staðfest að um nýja tegund sé að ræða. Hann sást fyrst árið 2008 þegar tveir ferðamenn sáu hann hátt uppi í tré og grunaði að þetta væri áður óþekkt tegund. Apinn sást þó ekki aftur fyrr en 2018 og sást meira en hundrað sinnum fram til 2022. 

Rannsakendur sem ræddu við þorpsbúa á svæðinu segja að fólk hafi takmarkaða þekkingu á þessari tegund og íbúar í aðeins átta af 52 þorpum könnuðust við að hafa séð slíkan apa. 

Mynd

Likweli er lýst sem sjaldgæfum og dularfullum, það sem er vitað er að hann heldur sig hátt uppi í trjám í þykkum frumskógi. Einn tilgangurinn er að skjalfesta tegundina er til að setja hana á lista yfir apa sem þarf að verja sérstaklega en mikið er um ólöglegar veiðar á svæðinu. 

Fjallað er meira um Likweli á vef Science.