Pressan

Svikakvendi á flótta handtekið í Tenerife – Stal 40 milljónum af aldraðri konu

Mynd
Mynd: Policia Nacional.

Bresk kona sem sakfelld var fyrir stórþjófnað gegn aldraðri konu var handtekin í Tenerife fyrir nokkrum dögum. 

Canarian Weekly greinir frá. 

Konan, hin 62 ára gamla Pamela Gwinnet, var fyrr á árinu sakfelld fyrir að svíkja 300 þúsund pund út úr hinni 89 ára gömlu Joan Green, sem lést árið 2022. Dómurinn var kveðinn upp í Preston á Englandi. 

Gwinnet var ekki viðstödd réttarhöldin því áður en til þeirra kom hafði hún rofið farbann og flúið til Tenerife þar sem hún fór huldu höfði í nokkra mánuði. 

Upphæðin sem Gwinnett stal af gömlu konunni jafngildir vel yfir 40 milljónum íslenskra króna. Hún starfaði við umönnun gömlu konunnar sem hún féfletti og er sögð hafa einangrað konuna og skipt um læsingar að húsi hennar, sem og um símanúmer hennar. Hún er síðan sögð hafa millifært um 300.000 pund af reikningi gömlu konunnar yfir á eigin reikninga, en fjármunina notaði hún meðal annars til fegrunaraðgerða og fasteignakaupa.

Fjölskylda gömlu konunnar hefur barist fyrir því að Gwinnet yrði handtekin og flutt til Englands til að afplána refsingu sína. Bresk yfirvöld gáfu út handtökuskipun á svikakvendið og nú hefur hún verið handtekin.