Einn er látinn og þriggja er saknað eftir að bát hvolfdi í San Francisco-flóa, nærri ferðamannastaðnum og fyrrverandi fangelsinu Alcatraz, á þriðjudaginn. Alls voru 19 um borð. Segja má að þarna hafi sé um að ræða harmleik á harmleik ofan, en meðal farþega voru aðstandendur og vinir sem voru þar samankomnir til að halda minningarathöfn og dreifa ösku látins ástvinar. Frá þessu greinir San Francisco Chronicle.
Maðurinn sem lést í slysinu hét Clifford Boisa en hann var 79 ára gamall. Yngri bróðir hans, John Boise, var eigandi bátsins og skipstjóri þess. Hann var um borð í skipinu en slapp með skrekkinn ásamt eiginkonu sinni. Bræðurnir voru þarna samankomnir ásamt vinum og vandamönnum til að minnast bróðurdóttur þeirra, Mariu Boisa, sem lést árið 2016 og til að dreifa ösku hennar.
Yfirvöld telja mögulegt að farþegarnir þrír, sem enn er saknað, hafi verið fastir undir þili þegar það sökk. Faðir Mariu, Ralph Boisa, var ekki um borð en það var dóttir hans Yvonne Thatcher hins vegar. Hún lýsti því svo við föður sinn að hún hafi verið undir þili þegar The Volare hvolfdi. Henni tókst að komast að hurð og koma sér út. Þrír aðrir sem voru með henni hafi ekki verið svo heppnir. Þetta munu vera systir bræðranna, Carol Boisa, eiginkona Cliffords sem heitir Jackie Boisa og svo vinur fjölskyldunnar sem ekki hefur verið nafngreindur.
WATCH: 17 rescued, 1 missing after boat catches fire near Alcatraz Island in San Francisco pic.twitter.com/ciVI5Mix8D
— Rapid Report (@RapidReport2025) July 14, 2026