Fjölskyldur fórnarlamba Gilgo-raðmorðingjans eru reiðar. Þær eru reiðar yfir því að fyrrverandi eiginkona morðingjans, hin íslenska Ása Guðbjörg Ellerup, hafi hagnast á því að deila sögu sinni. Því hafa þær tekið höndum saman í von um að koma á lagabreytingu sem fyrirbyggir að svona endurtaki sig ekki. Frá þessu greinir CBS-fréttastofan.
Fjölskyldur þeirra átta kvenna sem raðmorðinginn Rex Heuermann hefur játað að hafa myrt á árunum 1993-2010 berjast nú fyrir lagabreytingu, en þeim sárnar það verulega að Ása Guðbjörg hafi fengið fúlgur fjár fyrir að deila sögu sinni í heimildarþáttum um morðin, en að sögn fjölmiðla nam greiðslan rúmlega 128 milljónum króna.
Vilja fjölskyldurnar tryggja að svona endurtaki sig ekki, að aðstandendur morðingja geti hagnast á morðunum. Fjölskyldurnar krefjast nú breytingar á lagaverki frá áttunda áratug síðustu aldar sem er kennt við raðmorðingjann David Berkowitz, eða Son of Sam eins og hann var kallaður. Lögunum var ætlað að koma í veg fyrir að Berkowitz gæti hagnast á brotum sínum með því að selja sögu sína. Þar með er tjáningarfrelsi morðingja takmarkað af virðingu við fórnarlömb og fjölskyldur þeirra. Þessi takmörkun felst ekki í bláu banni við tjáningu heldur heimilar þolendum og fjölskyldum að hirða ágóðann. Fjölskyldur fórnarlamba Heuermanns segja að það sé glufa í lagaverkinu að fjölskyldur morðingja geti eftir sem áður hagnast á morðunum. Leggja þær því til að lögin verði uppfærð svo þau nái einnig til slíkra tilfella. Tillaga þeirra að lagabreytingu kallast Gilgo-viðbótin.
Ein talskona fjölskyldnanna segir að ætlunin sé ekki að takmarka tjáningarfrelsi Ásu eða annarra aðstandenda morðingja heldur að tryggja að slík tjáning verði ekki notuð í hagnaðarskyni.
„Þau [fjölskylda Heuermanns] eru að hagnast á fjölskyldumeðlimum okkar sem voru pyntaðir, og það er bara ógeðslegt.“
CBS ræddi við lögmann Ásu sem bendir á að hún og börn hennar séu einnig þolendur í þessu hörmulega máli. Hún hafi rétt á að deila sögu sinni.
„Þú getur ekki svipt neinn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til að deila sögu sinni,“