Veitingastaðir Taco Bell hafa nú fjarlægt fersk hráefni af matseðli sínum vegna svæsinnar niðurgangspestar sem nú herjar á Bandaríkjamenn. Pestin hefur verið rakin til sníkjudýra en ekki liggur enn fyrir hvaðan pestin kemur.
Á skilti við veitingastaðinn Taco Bell í Detroit mátti í gær lesa skilaboð til viðskiptavina þar sem staðurinn sagðist ekki geta boðið upp á kál, kóríander, pico de gallo eða guacamole.
Eins og áður segir þá er ekki víst að niðurganginn megi rekja til Taco Bell en sníkjudýrið, sem kallast cyclospora, hefur nú valdið veikindum hjá þúsundum manna víðs vegar um Bandaríkin.
Að sögn heilbrigðisyfirvalda veldur sníkjudýrið vatnskenndum niðurgangi, eða steinsmugu, sem getur varað í allt að mánuð og jafnvel lengur. Önnur einkenni eru magakrampar, ógleði, uppþemba, lystarleysi og þyngdartap. Flestir jafna sig án þess að þurfa nokkra meðferð.
Bandaríkjamenn hafa nú verið hvattir til að þvo fersk matvæli, hreinsa eldhúsáhöld og yfirborð og að fullelda hráefni. Eins er fólk beðið að hafa varann á gagnvart salatblöðum.
Taco Bell hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem fram kemur að skyndibitakeðjan hafi að eigin frumkvæði ákveðið að taka ákveðin hráefni úr umferð í forvarnarskyni. Keðjan fylgist náið með stöðunni og ætlar sér að fara í einu og öllu að fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda.
Yfirvöld hafa ekki viljað staðfesta við fjölmiðla að smitið hafi verið rakið til Taco Bell. Rannsókn sé enn í gangi þar sem meðal annars er til skoðunar hvort að sjúklingar hafi heimsótt sömu staðina áður en þeir veiktust.
BBC hefur það eftir sérfræðingum að smitrakning sé og verði afar erfið enda hafi yfirvöld undanfarið skorið verulega niður í fjárveitingum til heilbrigðis- og eftirlitsstofnana.
„Þetta er ekki eins og að finna nál í heystakk. Þetta er eins og að finna öreind af nál í heystakk,“ segir Steven Manderach, framkvæmdastjóri samtaka matvæla- og lyfjaeftirlitsmanna.
Eins taki það eina til tvær vikur fyrir einkenni að koma fram eftir smitið sem gerir rakningu torveldari.