Lögreglumaður í Las Palmas á Gran Canaria hefur verið handtekinn, grunaður um aðild að fíkniefnasmyglhring, í umfangsmikilli aðgerð spænsku ríkislögreglunnar. Aðgerðin kom í kjölfar margra mánaða eftirlits með starfsemi hringsins og fór fram á mánudag í La Paterna-hverfinu.
Canarian Weekly greinir frá þessu.
Rannsóknarmenn fylgdust með grunuðum einstaklingum hlaða kókaíni og hassi í bíl sem síðan var ekið að húsi í La Paterna. Við húsleit fannst mikið magn fíkniefna og nokkrir voru handteknir vegna gruns um fíkniefnasölu og dreifingu.
Meðal hinna handteknu var umræddur lögreglumaður og er nú rannsakað hvaða hlutverki hann hafi gegnt innan glæpahringsins. Vegna rannsóknarhagsmuna hafa yfirvöld ekki gefið frekari upplýsingar um málið.
Viðkomandi lögreglumaður hlaut stöðuhækkun fyrr á árinu og varð gerður að varðstjóra. Hann kom einnig við sögu í dómsmáli árið 2011 vegna ásakana um að hafa reynt að hafa áhrif á samstarfsmenn til að stöðva ölvunarakstursmál. Var hann sakfelldur í dómstóli á Kanaríeyjum en hæstiréttur Spánar sneri dómnum við og sýknaði manninn.
Lögreglan hefur enn ekki upplýst um heildarmagn fíkniefnanna sem hald var lagt á.