Pressan

„Kraftaverk á Hudson“ flugmaðurinn opnar sig um Alzheimersgreiningu

Mynd
Chesley „Sully“ Sullenberger III

Flugmaðurinn, Chesley „Sully“ Sullenberger III, sem lofaður var sem þjóðarhetja eftir að hafa lent farþegaflugvél heilu og höldnu úr farþegavél í Hudson ánni árið 2009 hefur verið greindur með Alzheimerssjúkdóm.

Sullenberger greinir frá á vefsíðu sinni og segir að hann hafii nýlega fengið greiningu og að sjúkdómurinn væri á frumstigi.

„Í bili þýðir þetta að ég mun ekki muna auðveldlega eftir nöfnm,  ég gleymi sögu sem ég sagði nýlega eða ég sef ekki eins vel, en ég er í upphafi þessarar löngu ferðar,“ skrifaði hann.

Flug 1549 hjá US Airways hrapaði í Hudson-ánni þann 15. janúar 2009 eftir að báðir hreyflar vélarinnar gáfu sig  árekstri við gæsahóp skömmu eftir flugtak. Allir 155 farþegar um borð lifðu af. Hröð hugsun og rólegt viðmót Sullenberger eru talin hafa afstýrt hörmungum.

Mynd

Fyrrverandi orrustuflugmaður bandaríska flughersins frá Kaliforníu sagði í færslu á vefsíðu sinni á þriðjudag að Alzheimerssjúkdómurinn „hafi ögrað því hvað það þýðir að þjóna fólki“ og að hann hefði fundið að „svarið sé að tjá sig“ um sjúkdóminn.

„Í gegnum árin, þegar fólk spurði um farsælan árangur flugs 1549, sagði ég að ,hugrekki geti verið smitandi‘ og þann dag hjálpaði það öllum að sameinast til að koma öllum farsællega út úr flugvélinni,“ skrifaði Sullenberger.  „Nú þurfum við þetta hugrekki til að berjast gegn þessum sjúkdómi. Ég er nú hluti af stærra samfélagi með mörgum ykkar og við munum vera hugrökk saman.“

Sullenberger hafði flogið í 40 ár fyrir flug 1549. Hann lét af störfum sem flugmaður ári síðar, árið 2010, og hefur haldið áfram að berjast fyrir flugöryggi.

Árið 2016 var neyðarlending hans sýnd í kvikmyndinni Sully með Tom Hanks í aðalhlutverki.