Piltur á Ítalíu hefur játað að hafa myrt þrettán ára stúlku þegar hann var fimmtán ára, hafði hann átt í sambandi við stúlkuna. Samkvæmt umfjöllun La Milano lést hin þrettán ára Aurora Tila í október 2024 eftir að hún féll fram af svölum á sjöundu hæð fjölbýlishúss.
Ungi maðurinn hefur nú játað að hafa ýtt henni fram af svölunum. Baðst hann afsökunar á verknaðinum og því að hafa beðið svo lengi eftir að játa á sig glæpinn.
Hann var ákærður fyrir morð og fór saksóknari fram á tuttugu ára fangelsisdóm, hefur hann nú verið dæmdur í 17 ára fangelsi og mun hann afplána í ungmennafangelsi til að byrja með. Áfrýjun verður tekin fyrir í september.
Upphaflega hélt hann því fram að hún hefði tekið eigið líf og stokkið sjálfviljug fram af svölunum. Frásögn hans passaði ekki við sönnunargögn málsins.
Samkvæmt ákæru höfðu þau átt í sambandi í nokkra mánuði en Aurora hafði hætt með honum vegna hegðunar hans. Fundust skilaboð til vinkvenna hennar þar sem hún lýsir því að hann hafi verið að eltihrella hana, einnig fundust færslur í gervigreind þar sem hún leitar ráða við eltihrellum.
Vitni sagði lögreglu að hann hafi séð Auroru hanga fram af svölunum áður en pilturinn ýtti henni. Þá var einnig fyrrum klefafélagi hans tilbúinn að bera vitni um að hann hafi játað fyrir sér að hafa ýtt henni.