Sex hundar komu eigendum sínum til bjargar þegar maður, sem grunaður er um tilraun til kynferðisbrots, réðst á tvær konur í almenningsgarði í Melbourne í Ástralíu á þriðjudagsmorgun.
Atvikið náðist á myndband og leitar lögregla nú árásarmannsins.
Árásin átti sér stað við Righetti Oval í Kooyong, þar sem konurnar voru á göngu með hunda sína meðfram Gardiners Creek.
Samkvæmt upplýsingum frá áströlsku lögreglunni sem Daily Mail vitnar til stökk maður skyndilega fram úr runnum og réðst á aðra konuna. Honum tókst að grípa hana, en hún losaði sig úr greipum hans eftir stutt átök.
Í kjölfarið beindi maðurinn athygli sinni að hinni konunni og reyndi einnig að ráðast á hana. Henni tókst sömuleiðis að verjast og hrekja manninn frá sér.
Þá brugðust hundarnir við.
Á myndbandi sem önnur kvennanna tók má sjá sex hunda af mismunandi tegundum og stærðum elta manninn yfir grasflötina á meðan þeir gelta hástöfum. Einn hundanna, ástralskur smalahundur (e. Australian cattle dog), stekkur upp á manninn og bítur í fótlegg hans með þeim afleiðingum að buxurnar rifna.
Heyra má manninn hrópa á hundana þegar hann reynir að komast undan. Að lokum flúði hann inn í undirgöng undir Monash-hraðbrautinni og kom sér í burtu.
Lögreglan rannsakar málið sem tilraun til kynferðisbrots en hinn grunaði er enn ófundinn.
Lögreglan hefur skorað á alla sem kunna að hafa orðið vitni að atvikinu eða búa yfir upptökum úr eftirlitsmyndavélum eða mælaborðsmyndavélum að hafa samband.