Yfirvöld í Flórída tóku í gær af lífi hinn 74 ára gamla Dennis Sochor fyrir nauðgun og morð sem hann framdi árið 1982. Aldrei í sögu Flórída hefur jafn gamall fangi verið tekinn af lífi. Búist er við því að enn eldri fangi hljóti sömu örlög síðar í mánuðinum.
Sochor var úrskurðaður látinn klukkan 18:16 að staðartíma í Flórída-ríkisfangelsinu nærri bænum Starke. Samkvæmt AP-fréttastofunni notaði Sochor sín hinstu orð í að biðjast afsökunar á gjörðum sínum og sagðist hann vera „innilega miður sín“ yfir því sem gerðist þennan örlagaríka dag árið 1982.
Málið á rætur að rekja til nýársnætur árið 1982. Hin 18 ára gamla Patricia Gifford var að skemmta sér með vinkonu sinni á bar í Fort Lauderdale þegar þær kynntust Sochor og bróður hans síðustu klukkustundir ársins 1981.
Samkvæmt dómsgögnum sátu þau saman um hríð, en þegar vinkona Gifford veiktist og sofnaði í bifreið sinni samþykkti Gifford að fara með bræðrunum í morgunmat.
Ferðin endaði þó með hörmungum.
Rannsókn leiddi í ljós að Sochor ók bifreiðinni á afvikinn stað þar sem hann réðst á Gifford eftir að hún hafnaði kröfu hans um kynlíf. Saksóknarar sögðu að hann hefði nauðgað henni og síðan myrt hana við fáfarinn veg. Lík hennar hefur aldrei fundist.
„Hann henti henni einfaldlega út eins og rusli,“ sagði aðalsaksóknarinn Kelly Hancock síðar í viðtali við Miami Herald.
Sochor slapp undan réttvísinni um nokkurra ára skeið en var handtekinn í Georgíu árið 1986 vegna óskyldra brota og framseldur til Flórída.
Við rannsókn málsins sagði bróðir hans lögreglu að Sochor bæri ábyrgð á hvarfi Gifford. Þá játaði Sochor sjálfur á hljóðupptöku að hafa kyrkt ungu konuna og losað sig síðan við líkið.
Árið 1987 var hann sakfelldur fyrir morð af yfirlögðu ráði og mannrán og dæmdur til dauða.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gærmorgun síðustu beiðni hans um að stöðva aftökuna og því var dauðadómnum framfylgt síðar um daginn.
Fram að aftöku Sochors hafði Dusty Ray Spencer, sem einnig var 74 ára, verið elsti fanginn sem tekinn hafði verið af lífi í sögu Flórída. Spencer var tekinn af lífi 25. júní fyrir morðið á eiginkonu sinni.
Sochor var viku eldri en Spencer þegar aftakan fór fram.
Flórída hyggst framkvæma aðra aftöku síðar í þessum mánuði þegar hinn 80 ára gamli Dominick Anthony Occhicone verður tekinn af lífi 28. júlí fyrir morðin á foreldrum fyrrverandi kærustu sinnar. Verði sú aftaka framkvæmd verður Occhicone elsti einstaklingurinn sem tekinn hefur verið af lífi í sögu ríkisins.