Gamalt flutningaskip klofnaði í tvennt og er að hluta til sokkið skammt frá strönd Bandar Abbas í Íran, en átök standa yfir á svæðinu. Myndband af skipinu hefur vakið töluverða athygli.
Skipið kallast Luni og virðist það hafa kjölbrotnað í norðurhluta Hormússundsins. Skipið er 32 ára gamalt sem að sögn The Maritime Executive er töluvert umfram hefðbundinn endingartíma skips af þessu tagi. Óstaðfestar fregnir herma að skipið hafi lent í árekstri við annað kaupskip fyrir nokkrum dögum og orðið fyrir skemmdum sem svo ágerðust allt þar til skipið klofnaði.
Ekki er útilokað að skipið hafi orðið fyrir tundurskeyti eða árás sem kallast Quicksink, en Bandaríkjaher hefur undanfarið staðið fyrir hörðum árásum á Bandar Abbas-svæðinu.
The Maritime Executive tekur eins fram að í sjaldgæfum tilvikum geti skip sem eru með veikleika í burðarvirki eða hafa verið rangt hlaðin klofnað með þessum hætti af sjálfsdáðum. Það gerist þó sjaldan þegar skip liggja fyrir akkeri í góðu veðri eins og í þessu tilviki.
Luni mun hafa verið í eigu sýrlenskra ríkisborgara.
BREAKING: Footage of the bulk carrier Luni sinking in the Strait of Hormuz today after a hull fracture that led to it splitting in two near Bandar Abbas.
This comes as Trump claims to be "Guardian of the Strait of Hormuz." pic.twitter.com/2sNo8ypX4u— The Hormuz Letter (@HormuzLetter) July 14, 2026