Pressan

YouTube mælir enn með myndböndum um átraskanir fyrir börn

Mynd

YouTube heldur áfram að mæla með myndböndum sem ýta undir átraskanir og óheilbrigða líkamsímynd fyrir unglinga, þrátt fyrir að bresk lög hafi fyrir rúmu ári síðan gert miðlinum skylt að vernda börn og ungmenni gegn slíku efni.

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn samtakanna Centre for Countering Digital Hate (CCDH) sem breska ríkisútvarpið, BBC, fjallar um.

Í rannsókninni bjuggu vísindamenn til gerviaðgang sem átti að líkja eftir 13 ára breskri stúlku sem í fyrsta sinn sýndi áhuga á efni um megrun og líkamsímynd. Eftir að hafa horft á tíu myndbönd af því tagi greindu rannsakendur næstu hundrað myndbönd sem YouTube mælti með í gegnum svokallað Up Next-reiknirit.

Niðurstaðan var sú að eitt af hverjum tíu myndböndum sem kerfið lagði til innihélt efni sem ýtti undir óeðlilega grannan líkama, öfgakennda kaloríuskerðingu eða annað efni sem gæti stuðlað að átröskunum.

Þrátt fyrir það benda höfundar rannsóknarinnar á að staðan hafi batnað frá árinu 2024. Þá innihélt eitt af hverjum fjórum myndböndum sem reikniritið lagði til sambærilegt skaðlegt efni.

BBC hefur eftir talsmanni Google, eiganda YouTube, að fyrirtækið leggi mikla áherslu á að koma í veg fyrir útbreiðslu skaðlegs efnis og að öll myndböndin sem bent var á í skýrslunni hafi nú verið fjarlægð fyrir brot á reglum miðilsins.

Niðurstöðurnar koma í kjölfar þess að breska fjarskiptaeftirlitið Ofcom gagnrýndi nýverið YouTube og TikTok fyrir að gera enn ekki nóg til að vernda ungt fólk á netinu.

Í júlí í fyrra tók jafnframt gildi mikilvægur hluti bresku netöryggislaganna, Online Safety Act, sem leggur lagalega skyldu á vefmiðla á borð við YouTube að vernda notendur undir 18 ára aldri gegn efni sem hvetur til sjálfsvíga, sjálfsskaða eða átraskana.

Lögin kveða einnig á um að fyrirtæki verði að meta hvort reiknirit þeirra geti leitt ungt fólk að skaðlegu efni og grípa til aðgerða til að draga úr þeirri áhættu. Vanræki fyrirtæki þær skyldur geta þau átt yfir höfði sér sektir sem nema allt að tíu prósentum af alþjóðlegri ársveltu þeirra.