Jared Isaacman, sem hefur gegnt starfi forstjóra Bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA síðan í desember á síðasta ári, játaði nýlega að stofnunin eigi „myndir“ af dularfullum fljúgandi hlutum sem hún „viti ekki“ hvernig á að skýra.
Isaacman sagði frá þessu í The Jack Gordon hlaðvarpinu í lok júní.
„Við höfum tekið myndir – og þetta er það sem Trump forseti er mjög opinskár um, sem, byggt á þeim gögnum sem eru í myndunum, þá vitum við ekki hvað þetta er,“ sagði Isaacman. Þessi óvænta játning hans mun líklega fæða af sér mikinn fjölda samsæriskenninga.
Isaacman gekk þó ekki svo langt að segja að NASA hefði sannanir fyrir að geimverur hefðu heimsótt jörðina. Hann sagði að stofnunin hefði ekki „fundið nein sönnunargögn“ um að dularfullir fljúgandi hlutir sé geimför vitsmunavera frá öðrum plánetum.
NASA hefur lengi haldið því fram að stofnunin sé ekki með neinar sannanir fyrir því að fljúgandi furðuhlutir séu frá öðrum plánetum.
Flestir hafa eflaust heyrt samsæriskenningar um að geimför frá öðrum plánetum hafi brotlent hér á jörðinni en Isaacman sagði að NASA hafi aldrei fundið nein slík geimför eða geimverur. Fox News skýrir frá þessu.