Pressan

Vísindamenn segja þetta skýr merki um að heilinn þinn sé að eldast

Mynd
Er heilinn að eldast? Mynd:Getty

Þegar fólk verður fertugt byrjar líkaminn smám saman að sýna merki þess að hann sé ekki lengur eins og á yngri árum. Þessu getur fólk lifað með þar til það áttar sig á að það sama á við um heilann. Hann er líklega ekki eins hraðvirkur, sveigjanlegur eða móttækilegur fyrir nýjungum og áður.

Þetta eru auðvitað engin gleðitíðindi en þau þurfa nú samt sem áður ekki að vera sorgleg. Það má svo sannarlega gleðjast yfir að vera svo heppin(n) að ná að eldast og um leið að maður getur nú horft á heiminn með meiri ró en áður og með meiri lífsreynslu á bakinu.

Vísindamenn hafa skoðað hver fyrstu merki öldrunar í heilanum eru og líklega koma niðurstöðurnar mörgum á óvart.

Nostalgía – Eitt fyrsta merkið um að heilinn sé að eldast er vaxandi þörf fyrir nostalgíu. Áður dreymdi mann dagdrauma um framtíðina en nú leita hugsanirnar oftar aftur í tímann.

Vísindamenn við Pennsylvania State háskólann í Bandaríkjunum komust að því í rannsókn sinni að eldra fólk upplifir mun meiri nostalgíu en yngra fólk. Yngstu þátttakendurnir í rannsókninni upplifðu um 60% minni nostalgíu en miðaldra þátttakendur. Þeir elstu upplifði nostalgíu allt að þrisvar sinnum oftar en þeir yngstu.

Nafna- og orðaruglingur – Annað skýrt merki er að fólk byrjar að rugla saman nöfnum og orðum. Ekki af því að það þekkir ekki sína nánustu, heldur af því að heilinn þarf lengri tíma til að finna réttu orðin.

Vísindamenn við háskólann í Liège í Belgíu sýndu fram á að fólk á fimmtugsaldri á erfiðara með að finna nákvæm orð og lýsingar og að þetta ágerist með aldrinum.

Ný þekking – Það getur líka orðið erfiðara að læra nýja hluti eftir því sem við eldumst. Heilinn missir smám saman getuna til þess en hún hverfur ekki alveg og sýnt hefur verið fram á að það að læra nýja hluti getur hægt á andlegri öldrun fólks.

Tímaskyn – Tímaskynið breytist með aldrinum. Brasilískir vísindamenn hafa sýnt fram á að eldra fólki finnst oft sem tíminn líði hraðar. Ástæðan er að með aldrinum upplifir fólk færri nýja hluti og það verður til þess að dagarnir renna saman.

Múltítaska – Öldrun kemur einnig fram þegar kemur að því að vera með margt í gangi samtímis, „að múltítaska“. Viðbragðstíminn verður lengri og það getur verið erfitt að hafa yfirsýn þegar margt er í gangi á sama tíma.

Þetta getur auðvitað verið pirrandi en það má líka líta á þetta sem áminningu um að hægja á sér og njóta núsins. Reynsla sigrar hraðann að lokum!