Hjá mörgum er kaffivélin eitt það fyrsta sem kveikt er á þegar farið er á fætur. Heitur kaffibolli er fastur hluti af morgunrútínu margra og aðferð þeirra til að komast í gang eftir nóttina.
En ef markmiðið er að fá eins mikið út úr örvandi áhrifum koffínsins og hægt er, þá getur verið góð hugmynd að breyta þessum venjum.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að það skipti meira máli en flestir halda hvenær fyrsti kaffibolli dagsins er drukkinn. Þetta kemur fram á kaffiheimasíðunni Kaffegeek.
Höfundar rannsóknarinnar segja að skömmu eftir að við vöknum byrji líkaminn að framleiða mikið magn af hormóninu kortísól. Það er oft nefnt stresshormón líkamans en það gegnir einnig mikilvægu hlutverki varðandi orkustig okkar og árvekni.
Kortísólmagnið eykst eftir að við vöknum og nær yfirleitt hámarki um tveimur klukkustundum síðar. Þess vegna telja vísindamenn að það geti verið góð ráðstöfun að bíða með að fá sér fyrsta kaffibollann.
Ástæðan er að þegar líkaminn býr til mikið af kortísóli getur það gert að verkum að örvunaráhrif koffínsins verði ekki eins mikil.
Mestu áhrifin nást með að drekka kaffi á þeim tíma þegar kortísólmagnið hefur fallið aftur.
Næringarfræðingurinn og kaffisérfræðingurinn Monica Hauger Carlsen, hjá Óslóarháskóla, segir að kaffidrykkja snúist ekki bara um áhrif koffínsins.
„Margir drekka kaffi af því að það er orðið að vana og manni finnst manni líða betur. Koffín hefur þessi áhrif á líkamann,“ sagði hún.
Hún sagði einnig að flestir fullorðnir munu varla finna neinn dramatískan mun ef þeir drekka kaffi snemma á morgnana og benti á að það geti haft meiri áhrif ef kaffi er drukkið síðar um daginn.
Að drekka kaffi seinnipartinn eða á kvöldin getur haft áhrif á svefninn hjá mörgum og þess vegna er skynsamlegt að takmarka koffínneysluna seinnipartinn og á kvöldin.