Pressan

Þetta eru stærstu mistökin sem fólk gerir þegar það grillar

Mynd

Hvað er notalegra en skella góðum mat á grillið á góðu sumarkvöldi. Lyktin af kolum eða gasi, kaldur drykkur og góður félagsskapur og auðvitað góður grillmatur. En þrátt fyrir að flest okkar hafi grillað árum saman, þá gerum við mörg hver sömu mistökin aftur og aftur.

Þetta eru algengustu grillmistökin:

Sama grilltöngin er notuð fyrir hrátt og eldað kjöt – Þetta eru mistök sem fólk gerir oft. Það setur hráan kjúkling eða steik á grillið með grilltönginni og þegar kjötið er tilbúið er sama töngin notuð til að taka það af grillinu.

Bakteríur úr hráa kjötinu geta þannig borist í eldaða kjötið. Hugmyndafræðin á bak við að grilla kjöt er einmitt að gera út af við bakteríurnar.

Þess vegna er best að vera með tvær grilltangir eða þvo töngina vel áður en kjötið er fulleldað.

Það er of mikill sykur í maríneringunni -

Sæt grill-marínering bragðast frábærlega en sykur á það til að karamillisera og brenna hratt á heitu grilli. Afleiðingin er að kjötið verður svart að utanverðu en ekki fulleldað að innan. Bitur og brennt bragðið yfirgnæfir alla góðu vinnuna.

Grillið er ekki látið hitna nóg – Margir kveikja á grillinu og skella kjötinu nær samstundis á það. Þarna verður óþolinmæðin skjót leið að sæmilegri máltíð í stað frábærrar máltíðar.

Vel heitt grill tryggir flotta steikarhúð og dregur úr hættunni á að maturinn festist við grillið. Þess utan er miklu auðveldara að hafa stjórn á eldamennskunni.

Kjötinu er snúið í gríð og erg – Margir snúa steikinni á hálfrar mínútu fresti og finnst kannski sem þeir hafi þannig betri stjórn á eldamennskunni. En þetta gerir að verkum að kjötið fær ekki flotta steikarhúð sem skiptir miklu máli hvað varðar bragð og áferð.

Það gleymist að láta kjötið bíða – Það er freistandi að skera kjötið um leið og það kemur af grillinu en það er betra að bíða af því að safinn er einn á hreyfingu inni í kjötinu. Ef maður sker það strax, lekur stór hluti af safanum út.

Látið kjötið hvíla í nokkrar mínútur áður en það er borðað.