Pressan

Þegar bréfið barst breyttist líf slökkviliðsstjórans í hrylling

Mynd
David og Lynn.

David Bryant var slökkviliðsstjóri í Christchurch í Dorset á Englandi og naut mikillar virðingar samferðafólks síns. Hann var hamingjusamlega kvæntur Lynn sem var einnig elskuð og virt af samfélaginu.

En líf þeirra hrundi til grunna á sunnudegi einum 2012 þegar bréf var sett inn um bréfalúguna hjá þeim.

Bréfritarinn sakaði David um að hafa beitt unglingspilt kynferðislegu ofbeldi á áttunda áratugnum. Átti David að hafa verið 26 ára þegar þetta gerðist.

Í bréfinu var eftirfarandi hótun sett fram: „Klukkan sex í kvöld fer ég á slökkvistöðina til að segja frá hvað gerðist. Klukkan 7 hef ég samband við dagblöðin.“

 Lynn las bréfið og sagði svo við David að hún myndi bara spyrja hann einu sinni hvort hann hefði gert þetta. Hann svaraði einfaldlega: „Alls ekki.“

Þrátt fyrir að þetta væru upplognar ásakanir var David dæmdur fyrir þetta þegar kviðdómur sakfelldi hann fyrir kynferðisbrot.

Það var 2014 sem hann var sakfelldur og var hann dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi. Þetta þýddi að nafn hans yrði á skrá yfir kynferðisbrota menn það sem hann átti eftir ólifað.

Mirror segir að hann hafi setið í fangelsi í tvö og hálft ár áður en sannleikurinn kom í ljós. Þá sneru dómarar áfrýjunarstóls sakfellingunni við eftir að í ljós kom að bréfritarinn og hið meinta fórnarlamb var „krónískur lygari“.

Þegar málið var tekið fyrir hjá hæstarétti sagði dómari að bréfritarinn hefði sett fram „upplognar ásakanir til að fá athygli og drama“.

Eftir að David var látinn laus sagði hann að þetta hafi verið hreint helvíti. „Þú verður að berjast svo mikið til að sanna sakleysi þitt,“ sagði hann.

En hörmungar David voru ekki á enda þegar hann var látinn laus. Aðeins sex mánuðum síðar lést Lynn af völdum blóðsýkingar.

Lögmaður David lýsti óréttlætinu á eftirfarandi hátt: „Þú varst sviptur frelsinu og síðan var konan þín tekin frá þér.“

David greindist síðar með elliglöp og þarf nú sólarhringsumönnun.