Pressan

Svona losnarðu við silfurskottur – Þarft bara eitt blað

Mynd
Silfurskottur eru hvimleiðar en meinlausar.

Þær sjást oft þegar ljósið er kveikt en skjótast um leið inn í rifur og skúmaskot. Þetta eru silfurskottur og þær gera sig oft heimakomnar inni á baði. Þær bíta ekki og það stafar alls engin hætta af þeim en samt sem áður eru þær sjaldnast velkomnar á heimilum fólks.

Það er auðvitað hægt að nota skordýraeitur til að vinna bug á þeim en það er líka hægt að nota gamalt húsráð sem kallar ekki á dýrar vörur eða flókinn búnað. Líklega áttu, það sem þarf til, nú þegar.

Samkvæmt þessu húsráði er hægt að búa til einfalda gildru með því að nota pappír og hunang. Settu þunnt lag af hunangi á pappír og settu hann þar sem nærri þeim stöðum þar sem þú hefur séð silfurskottur.

Lyktin af hunanginu lokkar silfurskotturnar til sín en þær festast í klístrinu og komast ekki á brott. Ef það er mikið af silfurskottum í húsinu, þá getur þurft að endurtaka þetta í nokkra daga.