Pressan

Stakk konuna sína 24 sinnum því hann vildi fá hana til að þegja

Mynd
Mynd úr safni.

Nathaniel Gotham, 32 ára, er í haldi lögreglunnar í Mesa, sem er borg á Phoenix svæðinu í Arizona í Bandaríkjunum.

Hann er grunaður um að hafa stungið eiginkonu sína 24 sinnum um síðustu helgi. Þegar hann hringdi í 911 játaði hann að hafa stungið hana. „Ég gerði þetta, þetta er allt mín sök,“ sagði hann að sögn lögreglunnar.

The Independent segir að hann hafi reynt að hringja í tengdamóður sína til að biðjast afsökunar sem og móður sína til að segja henni að hún myndi jafnvel aldrei sjá hann aftur.

Í skýrslu lögreglunnar kemur fram að árásin hafi átt sér stað á heimili hjónanna síðdegis á laugardaginn. Þegar lögreglumenn komu á vettvang sat Gotham blóðugur ofan á konunni sem var með alvarlega áverka.

Konan var strax flutt á sjúkrahús og er nú úr lífshættu.

Þegar lögreglan ræddi við Gotham sagðist hann hafa viljað fá hana til að hætta að tala og að á meðan á árásinni stóð hafi hann sakað hana um að „hafa eyðilagt bestu ár ævi minnar“.

Hann játaði einnig að hafa reynt að kyrkja hana fyrir nokkrum árum þegar þau rifust.