Villtur fíll snýr ítrekað aftur í mannabyggð í Nepal og hefur á síðustu 14 árum banað fjórum úr sömu fjölskyldunni. Í heildina hefur hann banað 25 manns síðan 2010.
The Independent skýrir frá þessu og segir að fíllinn, sem er kallaður Dhurbe, hafi orðið hjónum að bana nærri Chitwan þjóðgarðinum 2012.
Í kjölfarið flutti sonur þeirra, Bote, til Jagatpur því hann óttaðist að fíllinn myndi gera aðra árás. Í byrjun júlí réðst Dhurbe á fjölskylduna og banaði tengdadóttur Bote og fjögurra ára sonarsyni.
Upplýsingafulltrúi Chitwan þjóðgarðsins sagði að Dhurbe hafi orðið að minnsta kosti 25 manns að bana síðan 2010. Hann er meðal þeirra fíla sem yfirvöld fylgjast best með á svæðinu.
Sérfræðingar segja að hegðun Dhurbe tengist áskorunum á svæðum þar sem sífellt meira fer fyrir mannabyggðum sem ganga á hefðbundin heimkynni fíla.