Sú staðalímynd er ríkjandi að karlar séu ófærir um að vinna að mörgum verkefnum í einu og ný rannsókn gæti hafa leitt í ljós ástæðuna. Niðurstaðan er yfirleitt sú að konur eru mun betri en karlkyns jafnaldrar þeirra.
Hjónin Dr. Diana Szameitat og Dr. Andre J. Szameitat ákváðu að komast að því sjálf hvort konur eða karlar væru betri í að multitaska. Hjónin eru frá Brunel-háskólanum í London og í tilraun þar sem 41 karlmaður og 37 konur tóku þátt, fengu þau fólk til að framkvæma röð verkefna sem voru hönnuð til að herma eftir raunverulegum aðstæðum.
Þegar kom að því hversu vel verkefnum var sinnt undir álagi var enginn munur á kynjunum. Veikleikar karlanna komu greinilega í ljós þegar þeir þurftu að sinna verkefnum og svara spurningum.
Þegar þátttakendum var gefið það aukaverkefni að svara munnlegum spurningum, þá svöruðu karlar ekki meira en 25 prósentum spurninganna. Á sama tíma svaraði aðeins ein af hverjum tíu konum ekki spurningunum.
Í umfjöllun um rannsóknina sagði Dr. Andre J. Szameitat (samkvæmt fréttatilkynningu frá Brunel-háskóla ): „Það hefur alltaf verið þessi grunur um að kynjamunur sé til staðar þegar kemur að fjölverkavinnu. Með vinnu okkar vildum við varpa ljósi á hvers vegna hugsanleg staðalímynd gæti hafa þróast. Þessi minnkandi talfærni karla gæti skýrt hvers vegna karlar eru líklegri til að vera metnir verr í fjölverkavinnu en konur.“
Greinilega voru Szameitat-hjónin innblásin af annasömu lífi sínu sem foreldrar tveggja barna fyrir tilraunina.
„Við vorum að hugsa um okkar eigið líf með tvö börn og finna út hvar raunverulegar áskoranir við að vinna að mörgum verkefnum í einu lægju fyrir fólki,“ sagði Dr. Szameitat.
Í seinni hluta tilraunarinnar voru stuttmyndir af karlkyns og kvenkyns þátttakendum rannsóknarinnar að vinna verkefni sín sýndar fyrir hóp 80 hlutlausra áhorfenda svo að þeir gætu gefið álit sitt.
Þegar þátttakendur þurftu að byrja að svara spurningum komust áhorfendur að því að karlar sem gerðu fjölverkavinnu höfðu „minni stjórn á því sem þeir voru að gera, stóðu sig verr, lögðu minni áherslu á verkefnið og líkaði síður við það, samanborið við konur sem gerðu það sama.“