Óvenjulegt og ógnvekjandi veðurfyrirbrigði reið yfir í grennd við strandbæinn Hendaye í baskahluta Frakklands um helgina.
Eins og myndbandið hér að neðan sýnir var um að ræða risavaxinn skýjabakka, sem sumir hafa líkt við flóðbylgju, sem kom skyndilega upp að ströndinni.
Daily Mail birti myndband af atvikinu sem sýnir fólk á ströndinni hlaupa í ofboði í skjól þegar hið svokallaða galerne-veðurfyrirbrigði gekk yfir. Það gerist þegar kalt sjávarloft streymir hratt yfir heitt land og veldur hvössum vindi og snöggu hitafalli.
„Þetta var eins og hvirfilbylur. Allt í einu skall vindurinn á, fólk stökk á fætur og hljóp í burtu og himinninn varð svartur. Það var sólskin en svo dró skyndilega fyrir og allt varð þokukennt,“ sagði kona í samtali við Franceinfo.
Annar sjónarvottur sagði að þótt heimamenn væru vanir svokölluðum enbata-stormum, sem eru staðbundið heiti yfir galerne, hefði umfangið nú verið meira en áður.
Mikill hiti var á svæðinu um helgina og fór hann þegar mest var í 38 gráður. Lofthitinn féll hins vegar um 11 gráður á aðeins um sex mínútum þegar veðurfyrirbrigðið gekk yfir.
Svipað gerðist í Biarritz þar sem hitinn hafði rétt áður náð 42,9 gráðum og slegið nýtt hitamet. Innan nokkurra mínútna lækkaði hitinn niður í 23 gráður þegar kaldur vestanvindur gekk yfir.
Samkvæmt frönsku veðurstofunni Météo-France myndast galerne-stormar þegar kalt sjávarloft frá Biskajaflóa streymir yfir mjög heitt land. Þá getur myndast eins konar veggur af raka sem færist hratt inn af hafi ásamt hvössum vindhviðum.