Öldruð áströlsk hjón sem lýst var eftir um helgina fundust heil á húfi eftir rúmlega sólarhrings leit. Í ljós kom að þau höfðu yfirgefið hjúkrunarheimili sem þau dvöldu á þar sem leið ekki vel og vildu einfaldlega komast aftur heim.
Colin Geraghty, 89 ára, og eiginkona hans Claudette, 83 ára, fóru frá Ryman Nellie Melba öldrunarheimilinu í Wheelers Hill, suðaustur af Melbourne, um klukkan 11.15 á laugardag.
Áður en þau hurfu fóru þau í verslunarmiðstöðina The Glen þar sem þau sóttu lyfin sín. Síðast sást til þeirra um hádegi þegar þau óku á brott á hvítri Mazda-bifreið.
Áhyggjur af hjónunum jukust þegar nágranni þeirra kom við síðar um daginn en enginn svaraði. Lögregla hóf í kjölfarið leit að þeim.
Hjónin fundust loks á sunnudagskvöld, um 32 klukkustundum eftir að þeirra var fyrst saknað, skammt frá bænum Maryborough, um 168 kílómetra norðvestur af Melbourne.
Aðstandendur hjónanna voru skiljanlega áhyggjufullir þar sem þau eru komin af léttasta skeiði og glíma bæði við veikindi. Linda McKelvie, dóttir hjónanna, segir við fjölmiðla að foreldrum hennar hafi ekki líkað dvölin á hjúkrunarheimilinu en þar höfðu þau aðeins búið í nokkra daga.
„Ég held að þetta hafi verið þeim mikil breyting. Þeim líkaði í raun ekki að vera í umönnun og ég held að þau hafi einfaldlega viljað vera saman heima. Þau vildu bara komast heim,“ sagði hún.
Að sögn McKelvie telur faðir hennar enn að hann geti annast eiginkonu sína þrátt fyrir veikindi beggja. „Pabbi heldur að hann geti hjálpað henni ... þeim finnst eins og allt ákvörðunarvald sé tekið af þeim.“
Colin og Claudette hafa verið gift í 65 ár eftir að hafa hist fyrst á dansleik fyrir upp úr miðri síðustu öld.