Pressan

Ný rannsókn – Þessi lyf bæta heilbrigði fólks í ofþyngd mjög mikið

Mynd
Ákveðin lyf bæta heilsu of þungs fólks mikið.

Vel þekkt lyf geta dregið úr hættunni á alvarlegum hjarta- og æðasjúkdómum hjá fólki sem er í ofþyngd.

Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem var birt nýlega í vísindaritinu The Lancet.

Í rannsókninni kemur fram að á síðustu 40 árum virðist hjarta- og æðaheilbrigði fólks í ofþyngd hafa batnað mikið og er nú á svipuðu róli og hjá fólki sem er ekki of þungt.

Vísindamennirnir telja að ástæðan fyrir þessu sé aukin notkun á blóðfitu- og blóðþrýstingslyfjum í ríku löndunum.

Rannsóknin bendir því til að fólk í ofþyngd geti dregið úr líkunum á hjarta- og æðasjúkdómum og komið þeim niður á svipað stig og hjá grönnu fólki með því að nota fyrrgreind lyf.

Vísindamennirnir segja að þessi uppgötvun geti verið mikilvæg fyrir fólk undir fertugu sem glímir við ofþyngd. Þessi aldurshópur fær ekki eins oft blóðþrýstings- og blóðfitulyf og eldri aldurshópar. Rannsóknin sýndi að líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum í þessum aldurshópi eru enn miklar.