Á bak við tjöldin verður samband Kína og Rússlands sífellt nánara. Um 80 háttsettir fulltrúar landanna tveggja hafa haldið leynilega fundi frá 2020 og hafa þeir snúist um baráttuna gegn Vesturlöndum.
Þetta kemur fram í stórri umfjöllun þýska miðilsins Der Spiegel, franska miðilsins Le Monde og rússneska útlagamiðilsins The Insider.
Miðlarnir byggja umfjöllun sína á skjölum sem var lekið til þeirra. Í þeim kemur meðal annars fram að Rússar og Kínverjar hafi rætt um að ráðast á Starlink gervihnetti Elon Musk vegna þess hversu mikilvægir þeir eru fyrir Úkraínu. Þeir eru einnig sagðir hafa rætt víðtæka samvinnu á sviði vopnaframleiðslu.
Verkaskiptingin á milli landanna er sögð skýr. Kínverjar leggja til tækni sem er hægt að nota gegn Úkraínu. Á móti leggja Rússar til reynslu sem Kínverjar geta nýtt sér ef þeir gera alvöru úr hótunum sínum um að ráðast á Taívan.