Pressan

Húðsérfræðingar segja að á þessum tímapunkti sé best að fara í bað

Mynd
Mynd: Getty

Fyrir flesta er það órjúfanlegur hluti af deginum að fara í sturtu eða bað. Sumir byrja daginn með því en aðrir ljúka honum með því að skella sér undir eða í vatnið.

Fólk er ekki alltaf sammála um hvenær sé best að fara í bað eða sturtu en sérfræðingar í húðumhirðu segja að einn tímapunktur dagsins hafi marga fleiri kosti en aðrir tímar dagsins.

Sérfræðingarnir segja þó að það sé ekki til einhver réttur alheims tímapunktur til að baða sig. Byggja þurfi tímasetninguna á húðtegund, hinu daglega lífi og persónulegum venjum fólks.

En margir húðsérfræðingar mæla sérstaklega með því að fólk baðist á kvöldin. Ástæðan er að yfir daginn safnast sviti, drulla, sólarvörn, ryk og mengandi efni úr andrúmsloftinu á líkamann.

Kvöldbaðið hreinsar þetta allt og svo er auðvitað frábært að leggjast nýþvegin(n) upp í rúm. Linda.nl skýrir frá þessu.