Ferðasérfræðingur varar farþega við því að gera einföld mistök í flugi, sérstaklega þegar kemur að langferðum.
Mitch Glass hefur heimsótt meira en 40 lönd og farið í ótal flugferðir eftir að hann ákvað að ferðast með bakpoka um heiminn. Glass hefur mikla reynslu og vveit að það gilda margar óskrifaðar reglur þegar kemur að flugi, sérstaklega þegar kemur að því að halla sér í sætinu og teygja úr sér.
Þú gætir þurft að taka af þér skóna til að ganga í gegnum öryggiseftirlit en að fara um flugvélina skólaus er eitthvað sem þú ættir að sleppa.
Mitch útskýrir muninn á því að vera þægilegur og að vera truflandi.
„Í fluginu er ég yfirleitt í skónum þegar um stutt flug er að ræða en tek þá af mér þegar ég sef í lengri ferðum. Auðvitað er mikilvægt að vera í hreinum sokkum sem lykta ekki og trufla ekki aðra farþega.“
Hann segir marga gera þau mistök að vera skólaus þegar þeir ganga um vélina.
„Farðu alltaf aftur í skóna þegar þú gengur um flugvélina, sérstaklega þegar þú ferð á klósettið!“
Auðvelt er að skilja það þegar maður hugsar um líkamsvessana sem farþegar geta látið frá sér á gólf salernisins.
Glass ræðir einnig flugvallarfatnað og hvað ætti að íhuga að klæðast í langflugi, sem er ekki sérstaklega nauðsynlegt í stuttum innanlandsflugum.
„Ég nota mín uppáhaldsferðaföt t í næstum öllum flugferðum mínum, sama hversu löng flugin eru,“ útskýrði Glass.. „En almennt séð einbeiti ég mér að því að vera í svefnvænum fötum í langflugferðum.“
„Í stuttri flugferð geturðu bara klæðst því sem þú ætlar að nota þegar þú ferð út úr flugvélinni. Í mínu tilfelli eru svefnvænu fötin mín frekar fjölhæf, svo ég get notað þau í hvað sem ég er að gera strax eftir flugið.“
Glass rekur YouTube-rásina Project Untethered þar sem hann skráir ferðalög sín með konu sinni, sem hann hitti fyrir tilviljun í bakpokaferðalagi um Suður-Ameríku.
„Ég stoppaði í Kaliforníu í Kólumbíu til að fara á salsadansnámskeið. Ég ætlaði bara að vera þar í nokkrar vikur, en Guð hafði aðrar áætlanir fyrir mig. Ég hitti sæta kólumbíska stelpu í námskeiðinu, þessar tvær vikur urðu að nokkrum árum og áður en við vissum af vorum við gift og ferðumst um heiminn sem stafrænir hirðingjar.“
Fylgjast má með ferðalögum Glass á vefsíðu hans.