Þegar við eldumst breytist starfsemi líkamans á margan hátt. Húðin og slímhimnan verða viðkvæmari og ónæmiskerfið vinnur hægar. Þetta þýðir að bakteríur eiga auðveldara með að ná fótfestu og smá gleymska í daglegum líkamsþrifum hefur greinileg áhrif.
Í umfjöllun á vef pensionist.dk kemur fram að sérfræðingar bendi á fimm svæði líkamans sem þarf að huga vel að til að forðast óþægilega lykt og ertingu.
Þetta snýst ekki um einhverja fegurð, heldur um vellíðan, þægindi og heilbrigði.
Hér safnast bakteríurnar fyrir
Tungan gleymist oft en á henni safnast bakteríur og skán fyrir. Þetta getur haft áhrif á bæði lyktina úr munninum og heilbrigði munnsins. Það er nóg að hreinsa tunguna vel með tannbursta til að það hafi mikil áhrif.
Nefið er loftsía líkamans. Þegar slímhimnurnar þorna eða stíflast, dregur úr getu nefsins til að hreinsa loftið. Mild nefskolun tryggir betri öndun og kemur í veg fyrir ertingu.
Handarkrikarnir eru gósenland svita og baktería. Það þarf því að þvo handarkrikana vel og þurrka vel af því að raki og hiti skapa frábær skilyrði fyrir slæma lykt.
Fæturnir bera allan líkamann en fá oft litla athygli. Raki á mill tánna og þurr húð geta valdið fótsveppum, rifum og sprungum og slæmri lykt.
Naflinn er fullkominn söfnunarstaður drullu og sápuleyfa. Það er nóg að þrífa hann létt tvisvar þrisvar í viku.
Það tekur bara nokkrar mínútur daglega að þrífa þessi svæði en ávinningurinn verður strax ljós. Þetta snýst ekki um fullkomnun, þetta snýst um að líða vel í eigin líkama.