Pressan

Dýrasta risaeðla sögunnar

Mynd
T-rex á veiðum. Mynd:Getty

67 milljóna ára gömul beinagrind af Tyrannosaurus rex (T-Rex) risaeðlu var nýlega seld á uppboði hjá Sotheby‘s í New York. Kaupandinn greiddi 50,1 milljón dollara fyrir hana (það svarar til um 6 milljarða króna). Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir risaeðlu.

Beinagrindin er rúmlega 4 metra há og inniheldur um 60% af upprunalegri beinagrind dýrsins. Þetta er ein „fullkomnasta“ risaeðlubeinagrindin sem fundist hefur að sögn Sotheby‘s.

BBC segir að ekki hafi verið skýrt frá hver kaupandinn er.

Beinagrindin, sem hefur verið nefnd Gus, fannst 2021 á afskekktu býli í Suður-Dakóta. Það tók þrjú sumur að grafa beinagrindina upp en það var bara hægt að vinna við uppgröftinn þegar það var nógu hlýtt til að jarðvegurinn þiðnaði. Síðan tók þrjú ár að setja beinagrindina saman.

Í þessu ferli kom í ljós að bitför voru á hauskúpunni og að dýrið hafði rifbeinsbrotnað einhvern tímann á lífsleiðinni en það hafði gróið. Líklega hefur dýrið verið bitið í bardaga við aðra risaeðlu.