82 ára kona í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum má teljast heppin að vera enn á lífi eftir að hafa dottið ofan í baðkar á heimili sínu á dögunum. Þar lá hún föst í heila níu daga áður en henni var bjargað.
Konan, Joan Rivet, lýsti reynslu sinni í viðtali við The Mountaineer sem vefmiðill breska blaðsins The Guardian vitnar til. Joan hélt sér á lífi með því að skrúfa frá krananum í baðkarinu með fætinum og skvetta vatni upp í andlitið á sér svo hún gæti drukkið.
Rivet, sem er ekkja og hefur búið ein frá árinu 2023 í bænum Clyde í Norður-Karólínu, segir slysið hafa orðið að kvöldi 1. júní þegar hún var að undirbúa sig fyrir svefninn.
Hún steig skref aftur á bak á baðherberginu, missti jafnvægið og féll aftur fyrir sig ofan í baðkarið. Við fallið rifnaði sturtustöngin og fortjaldið niður með henni.
Gat ekki staðið upp
Við fallið meiddist Rivet á baki og áttaði sig fljótt á því að hún gat ekki dregið sig upp úr baðkarinu. Síminn hennar var inni í öðru herbergi og því náði hún ekki til hans.
Hún kallaði ítrekað á hjálp en enginn heyrði til hennar. Eina félagsskapinn veitti kötturinn hennar, Phoebe, sem mjálmaði við hlið hennar.
Klukkustundir liðu og síðan dagar.
„Dagarnir urðu dimmir og svo bjartir, dimmir og svo bjartir,“ lýsti hún í viðtalinu og bætti við að bænin hefði einnig hjálpað henni.
Bill Wilke, sýslumaður í Haywood-sýslu, staðfesti að lögreglumenn hafi fundið Rivet 10. júní eftir að bróðir hennar, Bill Lesko, hafði óskað eftir því að athugað yrði með hana.
Lesko, sem býr í Georgíu, varð uggandi þegar systir hans svaraði ekki símtölum hans. Þau höfðu það fyrir venju að hafa samband að minnsta kosti einu sinni í viku.
Hann hafði fyrst samband við nágranna hennar sem sáu að bíll hennar stóð enn í innkeyrslunni en engin hreyfing hafði sést inni í húsinu.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir Rivet hálfmeðvitundarlausa í baðkarinu.
Með ofþornun og slæmt legusár
Rivet var flutt á sjúkrahús þar sem hún reyndist vera með alvarlega ofþornun og þá hafði hún fengið slæmt legusár eftir að hafa legið lengi í sömu stöðu.
Læknar gáfu henni vökva í æð og næringu í fljótandi formi. Síðar var hún flutt á endurhæfingarstofnun í Waynesville þar sem hún jafnar sig.
„Mér er hlýtt, ég er þurr. Ég fór í sturtu í morgun – hallelúja – og þau þvoðu á mér hárið,“ sagði hún. „Ég hef fengið mat og vatn. Ég er sátt.“
Kötturinn Phoebe lifði einnig af þessa erfiðu daga.
Ætlar að flytja til fjölskyldunnar
Rivet segir reynsluna hafa breytt sýn hennar á mikilvægi samfélags og nágranna.
Hún hyggst nú flytja til Georgíu til að búa nær fjölskyldu sinni.
„Ég á tvo aðra nágranna sem búa líka einir,“ sagði hún. „Núna segjum við að við þurfum að fylgjast hvert með öðru.“
Samkvæmt bandarísku sóttvarnastofnuninni CDC verða milljónir eldra fólks fyrir byltum á hverju ári og geta slíkar byltur haft alvarlegar afleiðingar, sérstaklega þegar fólk býr eitt.
Frásögn Rivet er því áminning um hversu mikilvægt það getur verið að nágrannar og aðstandendur fylgist reglulega með öldruðum sem búa einir.