Pressan

18 ára varð heltekin af Frozen og Minions – Orsökin kom á óvart

Mynd

Frí á grísku eyjunni Rhodos var upphafið að sannkallaðri martröð fyrir hina 18 ára bresku konu Elise Seymour.

Skyndilega missti hún áhuga á öllu í kringum sig. UNILAD segir að hún hafi þess í stað viljað eyða öllum tíma sínum í hótelherberginu að horfa á kvikmyndina „Despicable Me“ og þegar hún flaug heim til Bretlands hlustaði hún á tónlistina úr kvikmyndinni „Frozen“ alla leiðina.

Fjölskylda hennar áttaði sig á að eitthvað var að og sá að eftir heimkomuna versnuðu einkenni til mikilla muna.

Elise átti erfitt með að skilja það sem fólk sagði og minni hennar brást. Hún gat ekki talið upp að tíu eða romsað stafrófinu upp. Síðan fór hún að fá flogaköst.

Eftir miklar rannsóknir greindu læknar hana með NMDA-heilabólgu.

Samkvæmt upplýsingum frá bandarískum heilbrigðisyfirvöldum er þetta sjaldgæfur sjálfsónæmissjúkdómur þar sem ónæmiskerfi líkamans ræðst á viðtaka í heilanum.

Þetta getur valdið alvarlegum breytingum á andlegri heilsu, minnisvandamálum, krömpum og í verstu tilfellum lífshættulegum erfiðleikum.

Elise sagði síðar að útskýrt hefði verið fyrir henni af hverju hún varð skyndilega svo heilluð af Disney-efni. Ástæðan er að heilinn var undir miklu álagi og leitaði því í eitthvað vel þekkt og öruggt frá æskuárunum.

Sjálf lýsti hún þessari lífsreynslu sem að hún hefði verið fjögurra ára gömul andlega. Hún gat legið klukkustundum saman og horft á „Minions“ og „Despicable Me“ án þess að átta sig á hversu alvarlega veik hún var.

Eftir að læknar greindu sjúkdóminn fékk hún viðeigandi meðferð sem bjargaði lífi hennar. Þá tók við löng og ströng endurhæfing. Hún varð til dæmis að læra að skrifa upp á nýtt sem og að spila á gítar. Minnið kom síðan aftur.

Það skiptir miklu máli að meðhöndla heilabólgu fljótt því tafir geta aukið líkurnar á varanlegum heilaskaða.

Elise kominn aftur út á vinnumarkaðinn en glímir enn við skert skammtímaminni.