Kreatín, eitt vinsælasta fæðubótarefni heims meðal íþróttafólks, gæti haft mun víðtækari áhrif en áður var talið. Ný rannsókn bendir til þess að efnið geti styrkt ónæmiskerfið og aukið getu þess til að berjast gegn krabbameini.
Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar vísindamanna við Háskólann í Kaliforníu í Los Angeles (UCLA). Niðurstöðurnar voru birtar í hinu ritrýnda vísindariti iScience.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að kreatín gefi svokölluðum T-frumum aukna orku, en þær eru tegund hvítra blóðkorna sem bera kennsl á og ráðast á bæði krabbameinsfrumur og veirur.
Í nýju rannsókninni kom hins vegar í ljós að kreatín hefur einnig áhrif á aðra mikilvæga tegund ónæmisfrumna, svokallaðar angafrumur.
Lili Yang, prófessor í ónæmisfræði og sameindaerfðafræði og aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir niðurstöðurnar sýna að kreatín styðji ekki aðeins við T-frumurnar sjálfar heldur allt það ónæmiskerfi sem undirbýr og stýrir þess á krabbameinsfrumur.
Í rannsókninni var músum með sortuæxli gefnar daglegar kreatínsprautur. Niðurstöðurnar sýndu að æxlin uxu hægar hjá þeim músum sem fengu kreatín en hjá samanburðarhópnum.
Jafnframt varð aukning á virkni angafrumna inni í æxlunum og þær losuðu meira magn boðefna sem kölluðu fleiri ónæmisfrumur á svæðið.
Rannsakendur komust einnig að því að kreatín jók orkuframleiðslu angafrumanna. Þeir líktu áhrifunum við endurhlaðanlega rafhlöðu sem gerir frumunum kleift að safna og nýta orku eftir þörfum, jafnvel þegar þær þurfa að keppa við ört vaxandi æxlisfrumur um takmarkað framboð næringarefna.
Þrátt fyrir lofandi niðurstöður leggja vísindamenn áherslu á að rannsóknin hafi eingöngu verið framkvæmd á frumum og músum en ekki á mönnum.
Því sé enn of snemmt að draga ályktanir um hvort kreatín geti orðið hluti af krabbameinsmeðferð eða hvort það gagnist fólki sem glímir við sjúkdóminn.
Kreatín hefur verið notað sem fæðubótarefni í áratugi og telst almennt öruggt. Rannsakendur vara þó við því að fólk sem gengst undir krabbameinsmeðferð eigi ávallt að ráðfæra sig við lækni áður en það bætir kreatíni eða öðrum fæðubótarefnum við meðferð sína.