Pressan

Úkraínumenn í ákveðnum vanda – „Sumir munu hugsa með sér að þetta eigi þeir ekki að sætta sig við“

Mynd
Úkraínskir hermenn á vígvellinum.

Afleiðingarnar geta orðið jafn greinilegar og stundarávinningurinn sem hlýst af því að gera árásir á Moskvu. Þetta segir sérfræðingur í rússneskum málefnum.

Líklega hafa margir Rússar hugsað með sér að undanförnu að stríðið sé komið of nærri þeim því Úkraínumenn hafa gert fjölda árása á olíuhreinsistöðvar, vopnaverksmiðjur og ákveðna innviði í Rússlandi á síðustu mánuðum.

Markmið Úkraínumanna með þessu er að þreyta almenna borgara í von um að þeir rísi upp og krefjist þess að endi verði bundinn á stríðið. En þessar árásir geta snúist í höndum þeirra og haft alvarlegar afleiðingar.

Þetta sagði Flemming Splidsboel, sérfræðingur í rússneskum málefnum hjá dönsku hugveitunni DIIS, í samtali við Jótlandspóstinn.

Hann sagði að taktík Úkraínumanna sé að láta Rússa finna fyrir því með því að ráðast á lögmæt skotmörk sem hafa hernaðarlega þýðingu og um leið hafa áhrif á afstöðu almennings til stríðsins.

Hann benti á að taktík Úkraínumanna byggi á þremur þáttum:

Að frysta víglínurnar, einangra Krím og gera árásir á mikilvæga innviði langt inni í Rússlandi.

Hann sagði Úkraínumenn vel vitandi um að þessar árásir fela ákveðna áhættu í sér því Rússar geti orðið enn harðari og notað stærri flugskeyti til árása á Úkraínu.

Hann benti einnig á að árásirnar geti gert að verkum að sumir hugsi með sér að þetta sé ekki hægt að sætta sig við og það þurfi að stigmagna stríðsreksturinn.  „Sumir munu hugsa með sér að þetta eigi þeir ekki að sætta sig við,“ sagði hann.