Pressan

Þetta er líkaminn að segja þér þegar þú færð náladofa

Mynd
Líkaminn er að segja okkur svolítið þegar við fáum náladofa.

Þú stendur upp eða byltir þér í rúminu og skyndilega er tilfinningin í höndinni undarleg. Ekki bara sofandi, meira eins og hún bregðist ekki við. Það er eins og kitltilfinning og hún titrar og í smá stund er eins og hún sé okkur ókunnug.

Flestir hunsa þetta og bíða eftir að þessi tilfinning hverfi. En eftir því sem Mayo Clinic og NHS segja þá er náladofi aðferð líkamans til að bregðast við ákveðnum hlut. Wibnet.nl skýrir frá þessu.

Þegar við fáum náladofa í hendur eða fætur er ástæðan yfirleitt að taug verður fyri þrýstingi. Þetta gerist oft þegar þú hefur legið á handleggnum eða setið í sömu stellingunni of lengi.

Mayo Clinic segir að taugar séu tenging á milli heilans og líkamans. Þegar þær klemmast, truflast merkjasendingarnar og svæðið missir tilfinninguna tímabundið.

Stundum getur þetta gerst hærra upp, sérstaklega í hnakkanum, þar sem taugar liggja niður í handleggina.

Um leið og þrýstingurinn hverfur byrja taugarnar að starfa á nýjan leik. En það gerist ekki án mótspyrnu.

Það er hægt að hjálpa líkamanum að sigrast á náladofa með því að hreyfa líkamshlutann, sem er með náladofa, varlega, skipta strax um stellingu og mýkja hnakkann með rólegum hreyfingum.

Ef þú færð oft náladofa án sýnilegrar ástæðu, þá er góð hugmynd að láta rannsaka málið.