Flestir muna eftir vegabréfinu, farmiðanum, hleðslutækinu og nauðsynlegustu snyrtivörunum þegar pakkað er niður í töskuna fyrir ferðalagið.
Hjá mörgum reyndum ferðalöngum hefur ósköp venjulegur hlutur úr heimi íþróttanna fengið sinn fasta samastað í handfarangrinum. Tennisbolti.
Þetta hljómar nú örugglega undarlega en sérfræðingar og reyndir ferðalangar benda á að boltinn geti gert langar flugferðir miklu þægilegri. Metro skýrir frá þessu.
Löng seta í flugvélasæti getur gert líkamann stífan og fólk verður oft aumt í baki, fótum og öxlum. Hér getur tennisboltinn komið til bjargar.
Það er hægt að nota hann til að nudda vöðva og þrýstipunkta með því að rúlla honum yfir bakið, lærin eða axlirnar.
Það er gott að setja boltann í handklæði því þá er auðveldara að stýra honum. Best er að setja boltann í miðjuna og rúlla handklæðinu upp eins og pylsu. Með þessu er hægt að setja þægilegan þrýsting á aum svæði án þess að boltinn rúlli í burtu.
Þetta snjallræði hefur auðvitað vakið athygli margra og hefur verið fjallað um það á samfélagsmiðlum og ferðasíðum þar sem margir hafa skýrt frá reynslu sinni.