Pressan

Rubio sagður stýra Venesúela

Mynd
Marco Rubio er sagður stýra Venesúela. Mynd:Getty

Bandaríkin hafa fulla stjórn yfir Venesúela og Marco Rubio, utanríkisráðherra, stýrir landinu í raun.

Þetta segir í umfjöllun The New York Times sem byggir þetta á heimildum frá rúmlega tylft embættismanna í Bandaríkjunum og Venesúela.

„Þetta er staðfesting á bandarískri valdbeitingu á Trump-tímanum, þar sem sigurvegarinn tekur allt óháð fullveldi og alþjóðalögum,“ segir í umfjöllun miðilsins.

Rubio hefur að sögn farið með stjórnartaumana á bak við tjöldin síðan Bandaríkin handtóku Nicolás Maduro, forseta, í byrjun árs og fluttu til Bandaríkjanna þar sem réttað verður yfir honum.

Í kjölfarið var Delcy Rodríguez útnefndur leiðtogi Venesúela til bráðabirgða en eftir því sem The New York Times segir þá átti hún bara að vera andlitið út á við því Rubio stjórni landinu, efnahagnum, skiptingu náttúruauðlinda og pólitískri stjórnun landsins.

Hann er sagður eiga í daglegum samskiptum við Rodríguez, aðallega í gegnum WhatsApp.

Er Rubio sagður þurfa að samþykkja allt sem á að gera í Venesúela.

Bandarísk stjórnvöld eru sögð stjórna dagskrá Rodríguez, þar á meðal dagatali hennar, yfirlýsingum og fleiru.