Við munum eftir honum sem manninum sem smjaðraði fyrir Donald Trump um borð í Air Force Once. En af hverju beygði hann sig í duftið fyrir Trump og kyssti hring hans?
Þetta var Lindsey Graham sem lést nýlega. Hann hataði Trump áður fyrr en samt sem áður stóð hann og brosti við hlið Trump. Af hverju? Hver var hann?
Graham var 71 árs þegar hann lést eftir stutt veikindi. Hann var nýkominn heim frá Úkraínu og eitt það síðasta sem hann gerði var að hringja í Donald Trump og segja honum frá „frábærri“ ferð til Úkraínu.
Graham, sem var öldungadeildarþingmaður frá Suður-Karólínu, var smjaðrari og í innsta hring hjá Trump, en hann var meira en það, flóknari en fólk taldi.
Bað Trump um að „fara til helvítis“
Graham er áhugaverður því hann var hluti af stórri hreyfingu, sem margir af helstu stjórnmálamönnunum úr röðum Repúblikana tilheyra einnig. Eins og þeir, þá fór hann úr því að hata Trump yfir í að styðja hann af öllum mætti.
Hann var kjörinn á þing 2002 og var hlut af gamla valdakjarnanum í flokknum.
Helstu áhugamál hans voru öryggismál, staða Bandaríkjanna í hinum stóra heimi.
Hann var náinn og góður vinur John McCain og þeir voru báðir ötulir talsmenn þess að Bandaríkin notuðu mátt sinn til að þenjast út. Þeir töldu að Bandaríkin væru einstök og byggju yfir móral og rétti til að berjast gegn óvinum sínum.
Vinirnir voru Evrópa og Ísrael en óvinirnir Kína, Rússland og Íran. Hann var mjög upptekin af góðu sambandi Bandaríkjanna við Evrópu.
Þegar Trump birtist fyrst á hinu pólitíska sviði 2016 hataði Graham hann. New York Times segir að hann hafi sagt Trump vera „lýðskrumara“.
„Veistu hvernig maður gerir Bandaríkin stór aftur?“ spurði Graham í viðtali hjá CNN 2015 að sögn New York Times.
Hann svaraði spurningunni sjálfur og sagði: „Maður biður Donald Trump að fara til helvítis.“
Graham barðist gegn hinni svokölluðu Teboðshreyfingu, sem var einhverskonar fyrirrennari MAGA, á sínum tíma.
Hann og John McCain voru taldir vera talsmenn skynseminnar í flokki sem varð sífellt óstöðugri.
Kyssti hringinn
En af einhverri ástæðu breytti Graham um stefnu. John McCain lést 2018 og eftir það smjaðraði Graham ekki bara fyrir Trump, hann gleypti næstum hringinn hans.
Hann gagnrýndi þó náðun Trump á þeim sem réðust inn í þinghúsið í janúar 2021. En á síðustu árum studdi hann Trump heilshugar og var tryggur stuðningsmaður hans í þinginu.
Hann breyttist úr andstæðingi Trump í smjaðrara, golffélaga hans og stuðningsmann.
Var ástæðan hugmyndafræðileg og var hann einfaldlega sannfærður um að málstaður Trump væri sá besti?
Eða var þetta tilraun hans til að verða trúnaðarmaður Trump og bandamaður svo hann gæti haft áhrif á verstu hugmyndir Trump og haldið Evrópu sem nánum bandamanni Bandaríkjanna?
Líklega komumst við aldrei að því.