Japan er eitt af aðeins fjórum þróuðum lýðræðisríkjum heims sem enn beita dauðarefsingum. Það sem vekur þó hvað mesta athygli er ekki aðeins að dauðarefsingar séu enn við lýði heldur hvernig þær eru framkvæmdar.
Dauðadæmdir fangar fá nefnilega yfirleitt ekki að vita af aftöku sinni fyrr en að morgni þess dags sem hún fer fram og aðstandendur eru gjarnan ekki upplýstir fyrr en eftir á.
Vefmiðillinn VT.co fjallaði um þetta á dögunum.
Dauðarefsing er lögleg samkvæmt japönskum hegningarlögum og er að jafnaði aðeins beitt í alvarlegustu morðmálunum. Alls eru 14 tegundir brot sem geta varðað dauðadómi, en í reynd eru nær allir sem dæmdir eru til dauða sakfelldir fyrir morð, oftar en ekki með fleiri en einu fórnarlambi. Aftökur fara fram með hengingu og eru sjö fangelsi í landinu búin þannig að aftökur geti farið þar fram.
Fá aðeins að vita sama morgun
Umdeildasti þáttur japanska kerfisins er að fangar fá ekki fyrirfram upplýsingar um hvenær dauðadómurinn verður fullnustaður. Þeir eru yfirleitt látnir vita aðeins nokkrum klukkustundum áður en aftakan fer fram.
Fjölskyldur og lögmenn fá heldur ekki fyrirvara og í flestum tilfellum er þeim aðeins tilkynnt um aftökuna þegar henni er lokið.
Dómsmálaráðuneytið í Japan hefur varið þessa framkvæmd með þeim rökum að vitneskja fyrirfram myndi valda föngunum óþarfa andlegri vanlíðan. Mannréttindasamtök hafa hins vegar gagnrýnt þetta harðlega og bent á að raunveruleikinn sé sá að fangar vakni á hverjum morgni, árum eða jafnvel áratugum saman, án þess að vita hvort sá dagur verði þeirra síðasti.
Mikill munur á Bandaríkjunum
Framkvæmdin er mjög ólík því sem tíðkast í Bandaríkjunum, hinu eina G7-ríkinu ásamt Japan sem enn framkvæmir dauðarefsingar.
Þar er dauðadæmdum föngum yfirleitt tilkynnt með nokkurra vikna eða mánaða fyrirvara hvenær aftakan fari fram. Þeir fá tækifæri til að hitta fjölskyldu sína í síðasta sinn og geta jafnframt óskað eftir sérstakri síðustu máltíð.
Enginn slíkur réttur er fyrir hendi í Japan.
Yfir hundrað á dauðadeild
Samkvæmt nýjustu upplýsingum sátu 102 fangar á dauðadeild í Japan í apríl á þessu ári. Margir þeirra hafa beðið í áratugi eftir aftöku við mjög ströng einangrunarskilyrði og takmörkuð samskipti við umheiminn.
Síðasta aftakan fór fram 27. júní 2025 þegar Takahiro Shiraishi, sem varð þekktur sem „Zama-morðinginn“, var hengdur. Hann hafði verið sakfelldur fyrir morð á níu einstaklingum sem hann hafði lokkað til sín í gegnum samfélagsmiðla. Aftakan var sú fyrsta í Japan í nærri þrjú ár.
Þrátt fyrir gagnrýni frá mannréttindasamtökum, Evrópusambandinu og Sameinuðu þjóðunum nýtur dauðarefsingin enn mjög mikils stuðnings meðal Japana.
Samkvæmt könnun sem japanska ríkið birti árið 2025 styðja 83,1 prósent landsmanna að dauðarefsingum verði áfram beitt. Sérfræðingar segja því litlar líkur á að Japan afnemi dauðarefsingar á næstu árum, enda hafi enginn stór stjórnmálaflokkur gert afnám þeirra að stefnumáli.