Pressan

Handtekinn á Tenerife eftir 18 mánuði á flótta

Mynd

29 ára gamall maður, sem hafði verið á flótta undan yfirvöldum í 18 mánuði, var handtekinn á Tenerife eftir að hafa reynt að komast undan hefðbundnu lögreglueftirliti í La Laguna. Atvikið átti sér stað þegar lögreglumenn framkvæmdu reglubundna skjalaskoðun á ökutækjum nálægt Las Chumberas-hverfinu. Maðurinn steig út úr bíl sem var í eftirlitsröðinni og hljóp í burtu. 

Canarian Weekly greinir frá. 

Nokkrir lögreglumenn veittu honum eftirför um nærliggjandi götur og náðu honum að lokum, yfirbuguðu hann og handtóku. 

Við rannsókn kom í ljós að maðurinn var eftirlýstur af dómstólum vegna gruns um röð þjófnaða og gefnar höfðu verið út á hann tvær handtökuskipanir. Lögregla hafði verið á eftir honum í um 18 mánuði. 

Maðurinn er búsettur í Finca España-hverfinu í La Laguna á Tenerife og er sagður hafa hlotið nokkra dóma áður, þar á meðal fyrir þjófnaði í  höfuðborginni, Santa Cruz. 

Eftir handtökuna var hann fluttur á heilsugæslustöð þar sem framkvæmd var hefðbundin læknisskoðun. Að henni lokinni var hann færður í varðhald hjá spænsku ríkislögreglunni í La Laguna. Hann hefur síðan verið leiddur fyrir dómstóla þar sem framhald málsins mun ráðast.