Það getur dregið aðeins úr stemmningunni eða bara drepið hana alveg ef foreldrar manns eru í húsinu þegar kynlíf er stundað. Það er óttinn við að þeir heyri brak í rúmi eða það sem er enn verra, fullnægingahljóð.
Nýlega leitaði maður einn ráða hjá kynlífsráðgjafa Metro. Maðurinn sagði að hann og konan hafi verið saman í tæp átta ár og þangað til nýlega hafi samband þeirra verið frábært. Þau hafi fengið hvort annað til að hlæja, þeim líki við sömu hlutina og kynlífið hafi alltaf verið frábært. Hún sé mjög nýjungagjörn og tilbúin að prófa næstum því hvað sem er og það hafi verið ávísun á mjög margar æsandi aðstæður.
„Til dæmis höfum við átt í mjög „vinsamlegum“ vinskap við besta vin minn og konuna hans. Þetta hefur falið í sér makaskipti nokkrum sinnum í gegnum árin og stundum hópkynlíf. Þetta höfum við alltaf gert heima hjá okkur því þau búa enn hjá foreldrum hans.
En þetta er vandinn. Maki minn hefur alltaf verið mjög náin föður sínum og þegar mamma hennar dó óvænt í janúar byrjaði hann að eyða sífellt meiri tíma heima hjá okkur. Í fyrstu hafði ég samúð með honum en með tímanum er hann farinn að vera meira hjá okkur en gott er.
Villt kynlíf okkar heyrir nánast sögunni til. Hún er meira að segja treg til að stunda einfalt kynlíf þegar pabbi hennar er hjá okkur því veggirnir í húsinu eru svo þunnir.
Ævintýri okkar með vini mínum og konunni hans eru líka í pásu.
Ég hef mikla kynhvöt og þessi afturför í kynlífi okkar gerir mig alls ekki hamingjusaman. Þetta eru orðnir sex mánuði og þrátt fyrir að hún lofi að þetta muni breytast, þá gerist það ekki.
Það er stelpa í vinnunni sem hefur gefið skýrt til kynna að henni lítist vel á mig og mér finnst freistandi að láta slag standa.“
Hann fékk auðvitað ráð frá kynlífsráðgjafanum sem ráðlagði honum að reyna að leysa málin heima fyrir. Að fara og halda framhjá væri bara að skipta einu vandamáli út með öðru.
Einnig velti ráðgjafinn því upp hvort konan sé hugsanlega að nota nærveru föður síns til að losna út úr villtu kynlífi því hún sé ekki svo hrifin af því. Kannski þurfi bréfritari að hlusta á þarfir hennar og ekki bara hugsa um sínar eigin.